mánudagur, 24. nóvember 2008

Föstudagur 24. október
Þennan dag byrjaði "Festival de Kreol" eða kreólahátíð sem stóð svo í viku. Þessi hátíð er haldin á allri Mahe (stærstu eyjunni) með alls konar uppákomum sem kynna kreóla menningu. Á þessum föstudegi voru haldnir tónleikar á leikvangi í Viktoríu (höfuðborginni) til að opna hátíðina og þar var spiluð tónlist innfæddra sem kallast seiga. Við þessa tónlist er svo dansaður sérstakur dans sem er líka kallaður seiga. Ég hef nú prófað að dansa þennan dans og það er sko ekkert grín, engar smá mjaðmahreyfingar og maður er alveg lafandi sveittur á eftir, en mjög skemmtilegt að horfa á flinkar konur dansa hann. Svo inní miðbæ var hellingur af básum þar sem seldur var kreólamatur, áfengi og alls konar minjagripir gerðir úr kókoshnetum, skeljum og ýmsu öðru einkennandi fyrir Seychelles. Við Bjarni og Þórdís skelltum okkur á tónleikana en byrjuðum samt á því að fá okkur að borða á básunum. Lise var að selja mat þarna og hafði verið að safna mat í frystikistuna sína í að minnsta kosti mánuð fyrir hátíðina. Hún vaknaði klukkan 4 á morgnana og byrjaði að elda, seldi allan matinn uppúr hádegi, kom svo aftur heim til að elda meira og seldi svo aftur allan matinn um kvöldið. Þetta gerði hún nánast alla vikuna enda græddi hún líka margra mánaða laun á þessari einu viku!

Laugardagur 25. október
Mamma og pabbi komu til Seychelles í tveggja vikna frí til þess að fagna fimmtugsafmæli mömmu. Það var rosalega gaman að hitta þau aftur eftir að hafa ekki séð þau í þrjá mánuði. Ég þurfti nú að byrja á því að ná stressinu úr þeim, sérstaklega mömmu, eftir allt kreppustandið heima og held ég að mér hafi tekist það mjög vel enda eftir að hafa verið hér svona lengi þá er ég orðin fáránlega afslöppuð. Fólk er svo hrikalega afslappað yfir hlutunum hérna og róleg í tíðinni og sem dæmi þá ganga þau afskaplega hægt og fyrst þegar ég kom hingað þá átti ég svo erfitt með mig, ég var manneskjan sem skaust á milli fólks og labbaði ótrúlega óþreyjufull á eftir þeim til að komast framúr, úff ég hef nú ekki ennþá getað vanið mig á að rölta svona hægt. Allavegana þá fórum við með mömmu og pabba á kreólahátíðina og kynntum þeim fyrir Lise og létum þau smakka matinn hennar, sem btw allir eru sammála mér um að er alveg dýrindis góður :)

Sunnudagur 26. október
Mamma var fimmtug þennan dag og þegar hún kom framúr um morguninn þá bíða hennar tvær gjafir. Önnur var frá mér þar sem ég gaf henni kreóla armband gert úr sverðfiski og "black wood", og hin var frá Bjarna og Þórdísi sem var veski gert úr skeljum sem notaðar eru til að framleiða svartar perlur hér á Seychelles. Mamma var mjög ánægð með gjafirnar og það var líka gaman að geta gefið henni eitthvað sérstakt héðan frá Seychelles. Í tilefni dagsins fórum við svo út að borða um kvöldið á veitingastað hér á Beau Vallon (þar sem ég bý) sem heitir Boat House og er með kreólskt hlaðborð. Maturinn var alveg rosalega góður enda át maður líka þvílíkt yfir sig, ótrúlegt hvað lítið er hægt að hemja sig þegar hlaðborð er í boði ;) Svo blikkaði Bjarni þjónana að útbúa smá köku handa mömmu og syngja afmælissönginn fyrir hana sem kom henni skemmtilega á óvart. Eftir þetta skelltum við okkur svo á spilavíti á einu hótelinu þar sem pabbi, Bjarni og Þórdís spreyttu sig á 21 (man ekki hvort spilið sé kallað eitthvað annað). Það kom nú enginn út í gróða en samt ágætis skemmtun fyrir tiltölulega lítinn pening :)

Miðvikudagur 29. október
Þetta miðvikudagskvöld var "Ladies night" á Tequila Boom skemmtistaðnum þar sem verið var að kynna Smirnoff og þemað var snjór (hehe ekki mikill snjór á Seychelles) svo allir áttu að mæta í hvítu. Við mamma og Þórdís ákváðum að skella okkur og meira og minna allir mættu í hvítum fötum svo það var mjög gaman að sjá yfir hópinn og allir í hvítu, sérstaklega þar sem það fer svörtu fólki svo vel að klæðast hvítu. Svolítið sérstakt að halda Smirnoff kynningu á miðvikudegi en það skipti okkur ekki miklu máli svo við duttum bara aðeins í það og dönsuðum fram eftir kvöldi :)

fimmtudagur, 20. nóvember 2008

Ég hélt að ég væri farin að höndla skorkvikindin hérna en það hefur komið í ljós að ég er far from it. Í fyrradag sat ég í sakleysi mínu inní stofu að vinna eitthvað í tölvunni þegar ég heyri svona af og til suð fyrir aftan. Í fyrstu nennti ég nú ekki að pæla í þessu, hélt þetta væri bara einhvers konar fiskifluga, en svo var þetta farið að stressa mig svolítið því suðið var háværara en fiskiflugurnar gefa frá sér. Svo á endanum stend ég upp til að kanna málið. Sé ég þá ekki vespu í glugganum hjá mér sem er á stærð við þumalputtan á mér!! Ég fæ alveg taugaáfall og hleyp inní eldhús að finna mér vopn, svo mjaka ég mér hægt og rólega að flugunni, sem er btw bak við gluggatjöldin, með plastflösku í annarri til að færa gluggatjöldin og eldhúsáhald í inni til að drepa skrímslið og svo með lak yfir höfði og herðar ef hún skildi nú byrja að ráðast á mig! Haha mér fannst ég svo fáránleg að ég bara varð að deila þessu með fleirum :) En svona til að ljúka sögunni þá tókst mér að drepa kvikindið og henda því út en ekki án þess að vera með brjálaða klígju allt kvöldið svo ég var með lakið yfir mér það sem eftir kvölds... Svo hægt er að segja að ég hafi ekki beint losnað við skordýrafóbíuna.

Sunnudagur 5. október
Systir bestu vinkonu hennar Shamilu var að fermast og bauð fjölskyldan hennar mér í ferminguna, ég hafði nú bara hitt þau tvisvar sinnum áður en fólk er svo opið hérna að það vildi endilega bjóða mér og það var bara gaman að því. Shamila dró mig í kirkjuna og ég held mér sé óhætt að segja að ég sé búin með kirkjuskammtinn næstu árin. Athöfnin stóð í tvær og hálfa klukkustund takk fyrir! Við Shamila stungum nú af eftir tvær og keyptum okkur að drekka því það var alveg steikjandi hiti inní kirkjunni, mér fannst það nú bara alveg ómannúðlegt af prestunum að láta fólk sitja á trébekkjum í þessum hita svona lengi. Eftir athöfnin var okkur svo boðið í hádegismat og þá uppgötvaði ég að við Shamila vorum einar af fáum sem fórum í kirkjuna því við vorum fyrstar af öllum gestunum. Og ekki nóg með það að þá ljáðist Shamilu að segja mér að taka með mér minna fín föt, svo ég sat þarna í alltof fínum kjól innan um fólk í bolum og stuttbuxum. Don´t get me wrong, ég er vön því að vera stundum overdressed en það er nú takmörk fyrir því hversu overdressed! Hvarflaði ekki að mér að fólk væri ekki fínt í fermingarveislum eins og hér heima. Allavegana í matnum þá var fermingarbarnið látið byrja en svo var ég látin vera næst að fá mér að borða af því ég væri nýi gesturinn, og þetta er alltaf gert í boðum hérna, einhvers konar kurteisisvenja.

Mánudagur 6. október
Bjarni og Þórdís, frændi minn og frænka, komu til Seychelles. Það var voða notalegt að hafa aftur félagsskap í húsinu og ekki nóg með það að þá er Þórdís svo dugleg að elda að ég losnaði alveg við það í heilan mánuð. Hún bauð uppá alveg dýrindis máltíðir svo þetta var algjör hátíð fyrir mig því, eins og vinkonur mínar hérna við hliðiná hafa oft skammað mig fyrir, þá er ég mjög löt í eldhúsinu. Ég vil nú samt benda á að það er allt annað að elda mat heima heldur en hér, eldhúsáhöldin öðruvísi og sum frekar gamaldags. En Þórdís býr yfir mörgum kúnstum í eldhúsinu sem hún var dugleg að kenna mér, og þá sérstaklega sýndi hún mér hvernig á að baka pönnukökur sem ég hef ósjaldan bakað eftir að þau fóru :)

Föstudagur 10. október
Bjarni flutti með sér alíslenskt lambalæri sem hann bauð svo Robin og félögum uppá í partýi heim hjá bróður Robins, William. Þetta var mjög skemmtilegt partý og voða notalegt að geta setið svona úti án þess að hafa áhyggjur af veðrinu. Þegar við fórum svo heim vorum við orðin vel drukkin og Bjarna fannst það allt í einu svo fyndið að hringja heim í Dominos og panta pizzu. Svo þegar strákurinn hjá Dominos segir sækja eða senda þá svoleiðis springur hann Bjarni úr hlátri og biður þá um að hafa pizzuna extra heita, hehe.

Laugardagur 11. október
Daginn eftir vorum við dauðuppgefin eftir partýið og væn þynnka í fólki, og btw ströndin er góður þynnkubani :) Og um kvöldið þegar við erum öll nánast farin að geyspa golunni þá hringir Robin til að bjóða okkur með þeim á skemmtistað, Tequila Boom, sem hafði borist uppí tal í partýinu. Svo við ákváðum að skella bara í okkur kaffi og svo rommi og kóki og fara út að tjútta. Ji ég hafði ekki upplifað svona mikið action síðan á Íslandi! Okkur fannst nú ótrúlegt hvað við vorum fljót að koma okkur í stuð aftur. Staðurinn er ágætlega stór, álíka og Nasa, og við stelpurnar og Bjarni dönsuðum allt kvöldið :) á meðan hinir karlmennirnir í hópnum stóðu við barinn. Það var svo heitt þarna inni og víst ekki allar loftræstingar í gangi svo við vorum svoleiðis lekandi af svita eftir kvöldið. Mér fannst nú voðalega sérstakt að inná staðnum var (strippara)súla þar sem margar stelpur spreyttu sig og Bjarni, hehe.

Sunnudagur 12. október
Daginn eftir þetta vöknuðum við svo klukkan 11 því okkur var boðið í hádegismat til Lise. Þórdís hafði beðið hana um að kenna sér að elda kreóla mat svo hún leyfði okkur að fylgjast með eldamennskunni, sem var mjög gaman því hún er með eldhús eins og veitingastaður. Okkur var boðið uppá bjór og rósavín svo þetta var þriðji dagurinn í röð sem við drukkum sem var aðeins of mikið af því góða :) Hún eldaði handa okkur súpu í forrétt sem var gerð úr tac tac, litlir skeljakrabbar sem finnast undir sandinum á ströndinni, sem við týndum deginum áður. Ég hef séð marga innfædda vera að týna tac tac á ströndinni, sem eru svo notaðir í svona súpu eða pastasalat, mjög sniðugt. Súpan var fín en krabbarnir sjálfir fannst mér ekki góðir :/ Aðalrétturinn var alveg þriggja rétta, fiskur, kjúklingur og svínakjöt. Svo var eftirréttur sem var svo góður, þá tekur hún sætar kartöflur (hvítar en ekki rauðar eins og heima) og það sem kallast coco jam, sem er einhvers konar rót, og sýður þetta uppúr kókosmjólk sem hún býr sjálf til með því að skafa innan úr kókoshnetu, saxar kókosinn niður, hellir vatni yfir og kreistir svo mjólkina úr. Mjög merkilegt að fylgjast með henni gera þetta :) Síðan hellir hún vanilludropum yfir og þá er kominn þessi dýrindis eftirréttur,mmmmm.

sunnudagur, 16. nóvember 2008

Nú er ég bara alveg að fara að koma heim! 11 dagar to be precise ;) Get ekki beðið. Sem þýðir að ég þarf að spýta í lófana með bloggið...

Mánudagur 22. september
Þennan morgun byrjaði ég að kenna hjá SIT og heitir hópurinn Telecommunications Engineering og ég er að kenna þeim advanced mathematics eða hluta af því námskeiði. Ég fékk að velja að kenna þeim trigonometry sem er my favourite, sem sagt sínus og kósínus :) Lúði Hlín, I know. Þetta hefur verið svolítið meira challenge en heima að því leitinu að ég þarf að búa til allt kennsluefni og próf sjálf. Svo líka sú staðreynd að ég kenni á ensku sem ég hef komist að gengur ekki ef ég er eitthvað þreytt því þá bara man ég engin orð og fyllist frustration yfir að geta ekki sagt allt sem ég hefði viljað, yfirleitt hlutir sem eru kannski irrelevant, mér finnst bara svo gaman að segja allt sem ég veit ;) Anyways ég hef líka verið að strögglast við að skilja nemendur mína því fólkið hérna talar ekkert sérstaklega góða ensku því framburðurinn þeirra á enskunni er svo rangur stundum, sem mér finnst pínulítið einkennilegt því þeim er kennd enska frá 6 ára aldri og kennt á ensku frá 8 ára aldri. Ég hef heyrt að fólk sé óánægt með að krökkunum sé kennt á kreóla í 6 og 7 ára bekk en svo er skipt yfir í ensku í 8 ára bekk. Þetta virðist allavega ekki ganga upp miðað við hvað margir hér eru slappir í enskunni. Anyways þrátt fyrir þetta þá hefur kennslan gengið mjög vel, challenge að kenna eingöngu strákum því á þessum aldri er erfitt að halda strákunum við efnið en ég held ég græði á því að vera ung kona því flestir hinir kennararnir eru karlmenn, og hef ég heyrt að það séu mikil agavandamál í tímum hjá mörgum þeirra. Ég hef nú alveg þurft að skammast í strákunum en það var nú aðallega vegna þess að flestir þeirra féllu á fyrsta prófinu mínu, úps. En þá breytti ég bara um taktík svo seinna prófið kom miklu betur út!

Föstudagur 26. september
Hér byrjaði ég að kenna hinum tveimur bekkjunum mínum, annar kallast Electronics Servicing og hinn Mechanical Engineering. Ég er að kenna þeim miklu meiri basic stærðfræði eins og algebru og svona, svo það var minna challenge að búa til kennsluefnið en meira challenge að ná áhuga þeirra, þá sérstaklega mechanical því slugsar sækjast víst í þann bekk. Og já það hefur verið challenge því stór partur þeirra er að falla á prófunum hjá mér, meðan hjá electronics bekknum eru flestir að ná og fá þó erfiðara próf. Oh well, ég reyni mitt besta að kýla þá áfram og alveg ótrúlegt hvað ég hef gaman af þessu :) Mér finnst ekki leiðinlegt að kenna þessum aldri 16 til 20 ára, því maður fær ekki þennan hroka frá nemendum sem ég upplifði þegar ég var að kenna dæmatíma upp í háskóla.

Fimmtudagur 2. október
Þennan dag fór ég á kennarafund uppí skóla og það var sko áhugavert! Kennararnir nöldruðu alveg ótrúlega mikið á þessum fundi og sýndu skólastjóranum og yfirkennurum enga virðingu, mættu of seint á fundinn margir þeirra, símarnir þeirra voru að hringja, sumir jafnvel sofa á þessum fundum. Ég verð að segja að ég er ekkert hissa að það séu agavandamál í tímum því kennararnir voru ekki gott fordæmi... Svo var ég svo hissa á einu, kennararnir áttu að vera búnir að skila einhverjum skýrslum, og skólastjórinn var að reka á eftir þeim, og kennararnir komu með ótrúlegustu afsakanir fyrir að vera ekki búnir að skila þeim, tölvan mín bilaði, bla bla bla, þeir hefðu alveg eins getað sagt að hundurinn át skýrsluna. Oh well skólinn er nýr, 3 ára ef ég man rétt, og enn verið að koma skipulagi á hluti svo ég vil sem minnst tjá mig um mínar skoðanir á fyrirkomulaginu þarna.

Föstudagur 3. október
Teacher´s day heitir þessi dagur og þá fagna allir kennarar á Seychelles með því að fara út að borða eða með barbeque á ströndinni. Þar sem það var mjög gott veður þennan dag (reyndar eins og flesta daga) þá var haldið barbeque á ströndinni. Og váááá margir kennaranna duttu sko í það! Ég fór nú ekki á neitt svakalegt fyllerí því ég vildi nú ekki alveg fara að sýna þá hlið á mér svona nýbyrjuð. En ég var nú orðin ágætlega tipsy þegar ég fór heim um kvöldið og var það eflaust SIT brugginu að kenna, eitthvað sem nokkrir kennarar mölluðu saman og buðu fólkinu uppá, ég held ég hafi fundið tequila bragð af drykknum. Það sem mér fannst svolítið skemmtilegt að það virtist sem vantaði meiri mat því nokkrar konur fóru niður á strönd og vinkuðu fiskimönnum til að kaupa fisk á grillið, þægilegt! Annað sem er svolítið merkilegt er að á ströndunum hérna eru engin salerni, því nú er þetta mikið ferðamannasvæði. En þetta þýddi það að maður þurfti bara að finna sér runna á afviknum stað til að pissa, ekki það að maður sé ekki vanur slíku á fyllerís útilegunum heima. Anyways svo tók ég strætó heim sem er nú yfirleitt ekki mjög skemmtilegar ferðir en í þetta skiptið var það ljúfasta strætóferð sem ég hef farið (SIT bruggið kom vel að notum þarna) ;)

mánudagur, 10. nóvember 2008

It´s Official

Ég held mér sé óhætt að segja að það sé official að ég sé latasti bloggari ever. En ég hef samt sett mér það markmið að ljúka við ferðasöguna áður en ég fer heim :) Svo þið megið búast við löngum færslum næstu vikurnar, hopefully...

Sunnudagur 7. september (fyrir 2 mánuðum síðan, úff)
Sunnudagsmorgunin ákvað ég að fara með Shamilu í kirkju. Nú eru 90% Seychelles-búa kaþólikkar svo ég var forvitin að sjá hvernig messa fer fram hjá þeim. Svo er Shamila líka svo kirkjurækin að hún missir af mesta lagi 5 sunnudagsmessum á ári! En ég held mér sé óhætt að segja að messa hjá kaþólikkum er alveg jafn boring og messurnar heima, og það bætti ekki að öll messan var á kreóla svo ég fékk ekki einu sinni að hlusta á Guðs orð, hehe :) Ég tók þó eftir nokkrum hlutum sem voru athyglisverðir, eitt var það að kirkjan er mjög hrörleg, og á það við fleiri kaþólskar kirkjur hér á Seychelles. Einnig var það að mjög lítið af skrauti og prjáli voru í kirkjunni og miðað við að þetta er kaþólsk kirkja þá er það mjög óvanalegt. En til að styrkja uppbyggingu kirkjunnar þá voru safnbaukar látnir ganga á milli kirkjugesta við lok messunnar.

Mánudagur 8. september
Þær Hildigunnur og Sylvía frá Námsgagnastofnun komu til Seychelles þennan mánudag og gistu í húsinu með mér í tvær vikur. Þær komu hingað til að heimsækja grunnskólana og ræða við kennara um notkun á tölvunum við kennslu. Einnig komu þær hingað til að ræða þann möguleika að þýða námskerfi frá Námsgagnastofnun á kreóla fyrir yngstu nemendurna. Ég ætla nú ekki að fara út í það hvað kom út úr þessum viðtölum en verið er að vinna í að setja tölvukennslu sem hluti af námsskránni hjá grunnskólum, og með þessari tölvugjöf þá hjálpar það án efa mjög mikið.
Annars var mjög gaman að hafa félagsskap hér í stóra húsinu og geta leyft sér að túristast meira og leyfa sér meiri lúxus eins og að fara út að borða :)

Fimmtudagur 11. september
Ég fór með í nokkrar skólaheimsóknir sem er svo sem ekki í frásögur færandi nema að í einum skólanum, sem var sérskóli, tók kaþólsk nunna á móti okkur. Það sem mér fannst svolítið merkilegt var að hún vildi ekki taka í höndina á Bernard, heldur bara á mér, Hildigunni og Sylvíu og hefur það verið útaf því að hann er karlmaður. Ég veit að þetta tengist eitthvað með holy virgin en mér finnst þetta nú voðalega hallærislegt en ég hef passað mig vel á því að vera ekki að tjá mig um trúmál hér og held ég sleppi því líka hér á blogginu.
En nóg um það, annars sá ég líka annað, í einni heimsókninni, sem ég hef aldrei séð áður, svartan albínóa. Þetta var lítill strákur og hann var með útlit innfæddra, sem sagt hrokkið hár og þykkar varir en alveg hvítt hár og snjóhvíta húð, æi litla greyið, hann var svo mikil dúlla! Og merkilegt nokk, ég sá annan svartan albínóa í dag (10. nóv), fullorðna Seychellois konu með snjóhvítt hár og húð. Skrítið að hafa séð tvo á svona lítilli eyju, hélt að albínóar væru sjaldgæfir.

Föstudagur 12. september
Þessi föstudagsmorgun var morgun of total failure... Í sérskólanum sem við heimsóttum kom í ljós að serverinn þeirra væri niðri, og að prentari og mús væru biluð. Svo ég bauðst til að koma og sjá hvort ég gæti lagað eitthvað. Oh man, nú ætlaði ég sko að sanna mig! Ég byrjaði á því að kíkja á serverinn þar sem ég hafði fengið leiðbeiningar frá honum Halldóri sem sá um uppsetningu á serverunum. En það gekk ekkert sama hvað ég reyndi. Svo kíkti ég á prentarann og komst að því að það þyrfti að hreinsa hann en til þess þyrfti að fara með hann niðrí menntamálaráðuneyti þar sem hann myndi liggja um óákveðinn tíma (hugsanlega aldrei skilað aftur). Svo ég reyndi að hreinsa prentarann en verð að viðurkenna vanþekkingu mín þar. Svo kannaði ég músina en gat ekkert gert þar heldur og með engin svör við neinu. Svo lítið fór fyrir því að geta sannað sig fyrir þessum karlrembum :S Oh well, tölvur hafa sjaldan verið vinir mínir. Ef það eru einhverjir úr rafmagns- og tölvuverkfræði að lesa þetta þá bið ég þá um að disregard this vinsamlegast ;)
Anyways eftir skólaheimsóknir tókum við rúnt um eyjuna og komst ég að því að hægt er að keyra hringinn á 3 tímum, þetta er svo lítið, hehe :)

Laugardagur 13. september
Um hádegisbilið ákváðum við dömurnar að skella okkur á grænmetis- og fiskimarkaðinn í bænum til að kaupa í matinn. Við ætluðum að hafa kjúkling í matinn en hann fékkst hvergi svo við ákváðum að kaupa fisk í staðinn, btw þá var fiskurinn að klárast svo við þurftum að kaupa 5 stk. Það þýðir ekkert að ætla að versla í matinn hér eftir hádegi því þá er bara allt búið! En Hildigunnur og Sylvía tóku sig bara til og verkuðu fiskinn hérna heima og skelltu honum svo heilum í ofninn fylltan af ávöxtum og grænmeti og þetta var bara hin fínasta máltíð :)
Svolítið skondið að segja frá því að við reyndum að kaupa lime á markaðnum til að setja á fiskinn en ákváðum að þar sem við gætum bara keypt 10 stk á 10 rúpíur (100 kr.) en ekki 3 stk eins og við vildum að þá keyptum við ekki lime. Þegar heim var komið áttuðum við okkur á því hvað það væri merkilegt að við skildum ekki týma að kaupa 10 lime á 100 kr en hefðum keypt 3 á sama verði, hehe, bara af því við máttum ekki kaupa 3 stk. Svona geta nýir staðir ruglað mann ;)

Sunnudagur 14. september
Við fórum í ferð á eyjarnar Praslin og La Digue sem eru næst stærstar á eftir Mahe (þar sem ég bý). Á sunnudeginum rúntuðum við aðeins um Praslin og sáum alveg ótrúlega fallega strönd, sem er víst talin ein af 10 fallegustu ströndum heims! Svo tókum við göngutúr um þjóðgarð sem heitir Valle de Mei. Það var alveg ótrúlega magnað að ganga þarna um því maður var bókstaflega kominn inní miðjan frumskóg. Í skóginum er að finna kókostré sem heitir Coco de Mer og þau bera stærstu fræ í heimi. Það sem er líka mjög merkilegt við þessi fræ er að til eru bæði karlkyns og kvenkyns fræ og þau líta út eins og "human private parts" hehe ;)

Mánudagur 15. september
Við fórum yfir til La Digue og þar sem sú eyja er enn minni en Praslin að þá er ekki mikið um bíla þar heldur ferðast fólk bara um á hjólum. Svo aðal fúttið er að leigja sér hjól og rúnta um, sem við að sjálfsögðu gerðum. En ég get alveg sagt ykkur að þar sem ég hef ekki hjólað í u.þ.b 10 ár þá gat ég ekki setið í marga daga á eftir! Eitt sem var mjög fyndið er að leigubílarnir eru kerrur sem dregnar eru af uxum (eða voru það naut, hver er munurinn? úff klár Hlín), hehe. Samt algjört rip off því túristarnir falla algjörlega fyrir þessu og láta draga sig á þvílíkt óþægilegum kerrum fyrir offjár á hótel sem tekur 5 mínútur að labba á. Ha ha það er sko lítið mál að svindla á túristum...

Jæja læt þetta gott heita í bili, vonandi bara nokkra daga ;)

sunnudagur, 26. október 2008

Mamma fimmtug í dag :)

Hún á afmæli í dag

hún á afmæli í dag

hún á afmæli hún mamma

hún á afmæli í dag


Til hamingju með fimmtugasafmælið mútta mín :)


Mamma og pabbi komu til Seychelles í gær þar sem hún mútta mín ákvað að halda uppá fimmtugsafmælið með ferð hingað og hitta sína langþráðu dóttur ;) Ég stóð á flugvellinum og sagði aftur og aftur við sjálfa mig að nú mætti ég ekki fara að skæla þegar ég sæi þau. Það verður nú að viðurkennast að það tókst ekki alveg, mér leið eins og ég væri 10 ára aftur þegar ég sá þau, fékk alveg kökk í hálsinn og knúsaði þau í bak og fyrir. Svo sagði mamma mér að hún hefði verið að segja það sama við sjálfa sig á leiðinni hingað að nú mætti hún ekki fara að gráta þegar hún sæi mig, hehe like mother like daughter.


Annars er ég alveg agalega lélegur bloggari, en ég skal reyna að koma með næstu bloggfærslu mjög fljótlega!